15. janúar 2010 | 11:35
ADR - NÁMSKEIÐ Réttindi til flutnings á hættulegum farmi
 
 
ADR –RÉTTINDI
Gilda m.a. á Evrópska efnahagssvæðinu
 
Fyrirhugað er að halda eftirtalin námskeið í Reykjavík ef næg þátttaka fæst fyrir stjórnendur ökutækja sem öðlast vilja réttindi (ADR-skírteini) til að flytja tiltekinn hættulegan farm á vegum á Íslandi og annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu:
 
Grunnnámskeið (flutningur á stykkjavöru
(fyrir utan sprengifim- og geislavirk efni):    1.-3. febrúar 2010.
Flutningur í tönkum:                                   4.-5. febrúar 2010.
Flutningur á sprengifimum farmi                      6. febrúar 2010.
 
Skilyrði fyrir þátttöku á námskeiði fyrir flutningi í tönkum og/eða flutningi á sprengifimum farmi er að viðkomandi hafi setið grunnnámskeið (stykkjavöruflutningar) og staðist próf í lok þess.
Skrá skal þátttöku og greiða námskeiðs- og skírteinisgjald í síðasta lagi miðvikudaginn 27. janúar 2010.
Skráning og nánari upplýsingar hjá skrifstofu Vinnueftirlitsins í Reykjavík, Bíldshöfða 16, sími 5504600.