05. mars 2010 | 10:31
Námskeið um notkun sprengiefna
 
Námskeið um notkun sprengiefna
 
Dagana 22. – 26. mars 2010 verður haldið námskeið í Reykjavík um meðferð sprengiefna ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið sem er fræðilegt er ætlað þeim sem öðlast vilja réttindi til að fara með sprengiefni og annast sprengivinnu samkvæmt reglugerð nr. 684/1999 um sprengiefni.
Skráning og nánari upplýsingar hjá Vinnueftirlitinu, Bíldshöfða 16, Reykjavík, sími 550 4600.
Skrá skal þátttöku og greiða námskeiðsgjald sem er kr. 82.800:- í síðasta lagi miðvikudaginn 17. mars 2010.
Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.